Mánudagur 21. október 2019 kl. 22:29
Stolinn bílaleigubíll fannst á Akranesi
Lögreglunni á Suðurnesjum barst um helgina tilkynning þess efnis að bílaleigubíl, í eigu bílaleigu í umdæminu, hefði verið stolið þar sem hann stóð í Reykjavík. Þegar leigutaki ætlaði að nota hann var hann horfinn.
Bifreiðin fannst á Akranesi sem og sá sem hafði stolið henni.