Bygg
Bygg

Fréttir

Stöku skúrir í dag
Mánudagur 2. ágúst 2004 kl. 10:15

Stöku skúrir í dag

Klukkan 6 var suðaustanátt, víða 5-10 m/s. Skúrir suðvestanlands, rigning eða súld á Suðaustur- og Austurlandi, en annars yfirleitt skýjað með köflum. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast á norðaustantil.

Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Suðaustan 3-10 m/s, en austlægari síðdegis og norðaustan 5-10 vestantil í kvöld. Rigning eða súld með köflum suðaustan- og austanlands, stöku skúrir suðvestantil, en annars yfirleitt skýjað með köflum og þurrt. Fer að rigna síðdegis, fyrst sunnan- og suðaustanlands og víða rigning eða súld seint í kvöld. Austlæg átt 5-10 og rigning eða súld með köflum sunnan- og austantil á morgun, en úrkomulítið í öðrum landshlutum. Hiti yfirleitt 11 til 16 stig að deginum.
Bílakjarninn
Bílakjarninn