Stöku skúrir en lægir í kvöld
Klukkan 6 var norðaustlæg átt, víða 10-15 m/s og lítilsháttar rigning eða skúrir, en hægari sunnanlands. Hiti var 6 til 10 stig á láglendi.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Norðaustan 8-13 m/s og stöku skúrir, en lægir í kvöld. Hiti 10 til 16 stig.
Kortið er af vef Veðurstofunnar og sýnir veðrið kl. 18 í dag.