Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Stöku skúrir
Sunnudagur 8. júní 2008 kl. 09:24

Stöku skúrir

Spáð er austlægri eða breytilegri átt við Faxaflóann í dag, 3-8 m/s. Skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti 8 til 13 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Á þriðjudag:
Fremur hæg norðan og norðaustanátt. Yfirleitt bjart og þurrt sunnantil á landinu og hiti 10 til 15 stig, en súld eða rigning á Norður- og Austurlandi og hiti 5 til 10 stig.

Á miðvikudag og fimmtudag:
Hæg norðvestlæg átt og víða bjartviðri, en hætt við þokulofti við norður- og vesturströndina. Hiti 8 til 16 stig.

Á föstudag:
Breytileg átt og víðast þurrt. Heldur hlýnandi veður.
 

Á laugardag:
Úlit fyrir suðlæga átt með rigningu, einkum S- og V-til.


VF-mynd/elg: Víða má sjá ungmenni við sumarstörfin þessa dagana. Það ætti að viðra ágætlega á þau í vikunni.