Bygg
Bygg

Fréttir

Stofnuðu áhugafélag um fuglaskoðun
Föstudagur 16. september 2011 kl. 12:09

Stofnuðu áhugafélag um fuglaskoðun

Áhugafélag um fuglaskoðun á Reykjanesi var stofnað í gærkvöldi. Félagið heitir Fuglar á Reykjanesi en stofnfélagar voru 14 talsins. Þeir sem vilja gerast stofnfélagar hafa kost á að skrá sig til 1. október nk. Skráningar í félagið má senda á Hjálmar Árnason, [email protected].

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Jón Gunnar Ottósson frá Náttúrufræðistofnun Íslands var gestur fundarins og kynnti hamm m.a. starf stofnunarinnar á sviði fuglarannsókna á Reykjanesi.


Náttúrufærðistofnun mun vera Fuglum á Reykjanesi innan handar í starfi sínu og munu m.a. fuglafræðingar mæta með fróðleik um fugla. Þá geta félagar tekið þátt í fuglatalningu. Skipulagðar verða skoðunarferðir en á Reykjanesskaganum má sjá mikinn fjölda fugla. Hér hafa margar tegundir viðkomu á leið sinni bæði til varpstöðva og eins á heimleið til vetrarstöðva sinna.


Myndin var tekin á stofnfundinum í gærkvöldi. VF-mynd: Hilmar Bragi