Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Stofnfundur Reykjanes GeoPark á morgun
Mánudagur 12. nóvember 2012 kl. 11:30

Stofnfundur Reykjanes GeoPark á morgun

Á morgun, þriðjudag, verður formlega stofnuð sjálfseignarstofnun um jarðvang á Reykjanesi í fundarsal Bláa lónsins. Stofnfundurinn hefst kl. 17. Lengi hefur verið unnið að stofnun jarðvangs á Reykjanesi. Á undanförnum mánuðum hefur verið unnið að umsókn um aðild að Samtökum evrópskra jarðvanga (European Geoparks Network) sem er hluti sambærilegs net alþjóðlegra jarðvanga undir verndarvæng UNESCO.

Í undirbúningshópi verkefnisins hafa átt sæti fulltrúar sveitarfélaganna á Suðurnesjum, þ.e. Grindavíkurbæjar, Reykjanesbæjar, Sandgerðisbæjar, Sveitarfélagsins Garðs og Sveitarfélagsins Voga. Þá hafa komið að verkefninu fulltrúar fræða- og atvinnulífs á svæðinu, þ.e. Ferðamálasamtaka Suðurnesja, Bláa lónsins, HS Orku, Keilis - miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs auk Heklunnar - atvinnuþróunarfélags Suðurnesja.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Áhersla jarðvangsins er á að byggja upp vandaða ferðaþjónustu og fræðslu tengt einkennum svæðisins, einkum jarðfræðinni, í samvinnu við hagsmunaaðila. Þá mun jarðvangurinn verða öflugt tæki í markaðssetningu á svæðinu.

Allir áhugasamir eru velkomnir!