Fréttir

Stofnfundur FLUG-KEF á morgun
Fimmtudagur 28. janúar 2010 kl. 16:36

Stofnfundur FLUG-KEF á morgun

Stofnfundur opinbers hlutafélags um rekstur Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf. verður haldinn í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu á morgun. Nafn hins nýja félags hefur ekki verið ákveðið.


Félagið er stofnað samkvæmt ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra með heimild í lögum nr. 153/2009 um stofnun opinbers hlutafélags um flugleiðsöguþjónustu og flugvallarekstur og tengda starfsemi. Félaginu er ætlað að taka yfir öll réttindi og allar skuldbindingar Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept


Tilgangur félagsins er að annast rekstur og uppbyggingu allra flugvalla landsins og fasteigna, flugleiðsöguþjónustu, þar með talda flugumferðarþjónustu, fjarskipta- og leiðsögukerfa og aðra starfsemi sem tengist flugrekstri og er nánar skilgreind í drögum að samþykktum félagsins sem lögð verða fram á stofnfundinum.


Stofnfundurinn hefst klukkan 13. Verður þar lögð fram tillaga að stofngerð fyrir félagið, tillaga að samþykktum og stofngögn undirrituð í framhaldi af því. Einnig verður hinu nýja félagi kjörin stjórn og í lokin mun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ávarpa fundinn.


Bílakjarninn
Bílakjarninn