Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Stofnaður verði bílastæðasjóður í Reykjanesbæ
Lögð hafa verið drög að stofnun bílastæðasjóðs í Reykjanesbæ. Á myndinni er ráðhús Reykjanesbæjar. VF-mynd: Hilmar Bragi
Föstudagur 28. október 2022 kl. 06:53

Stofnaður verði bílastæðasjóður í Reykjanesbæ

Skipulagsfulltrúi Reykjanesbæjar hefur lagt fram drög í umhverfis- og skipulagsráði Reykjanesbæjar að stofnun bílastæðasjóðs.

Stofnun bílastæðasjóðs hefur lengi verið í bígerð en tilgangur slíks sjóðs er að halda utan um gjöld, innheimtu og kostnað við bílastæði á bæjarlandi og rekstur á bílastæðum í eigu sveitarfélagsins. Gerir það mögulegt að fylgja eftir reglum sem sveitarfélagið setur um óheimilar eða tímabundnar bifreiðastöður með sektum. Einnig hefði sjóðurinn umsjón með styrkjum til íbúa og lóðarhafa til að útbúa bílastæði ef ástæða þykir til.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Lagt er til að stofnaður verði starfshópur með tengingu við umhverfis- og skipulagsráð og bæjarráð sem kannar fýsileika og ákveði verkefni sjóðsins. Verði tekin ákvörðun um stofnun sjóðsins verði honum sett stjórn sem mótar reglur og starfshætti. Tekjur sjóðsins rynnu til rekstrar hans og afgangur í bæjarsjóð.