Stofna stuðningsfélag krabbameinssjúkra
Mikill áhugi er á stofnun stuðningshóps á Suðurnesjum fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein. Áhugasamir hafa rætt um að stuðningshópurinn mundi standa fyrir fræðslu- og rabbfundum þar sem þeir hittast og fá stuðning og styrk hver frá öðrum.
Ákveðið hefur verið að stofna stuðningshóp undir nafninu „Sunnan 5” (5 stendur fyrir Reykjanesbæ, Garð, Sandgerði, Grindavík og Voga) og verður stofnfundur haldinn að Smiðjuvöllum 8 (húsi Rauða krossins) í Keflavík miðvikudaginn 13. apríl n.k. klukkan 17.00. Allir sem málið varðar eru hvattir til að mæta og leggja því lið.
Víða á landinu eru staðbundnir stuðningshópar sem starfa í skjóli krabbameinsfélaga á viðkomandi stöðum og á vegum Krabbameinsfélags Íslands starfa sjö stuðningsfélög sjúklinga á landsvísu. Vefsíða Krabbameinsfélagsins er: http://krabb.is/