Stofna öldungaráð í Grindavík
Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti að stofnað yrði Öldungarráð Grindavíkurbæjar á bæjarstjórnarfundi þann 30. janúar sl. eftir að félag eldri borgara í Grindavík lagði fram tillögu þess efnis.
Verið er að byggja sex nýjar íbúðir við Víðihlíð í Grindavík sem er dvalarheimili aldraða og hefur tómstundastarf eldri borgara sem fer fram í Miðgarði í Víðihlíð verið vel sótt. Einnig var sett á laggirnar tilraunaverkefni um að bjóða eldri borgurum upp á mat í hádeginu, það tókst vel og ákveðið var að halda áfram að bjóða upp á mat í hádeginu í ár.