Stofna óhagnaðardrifið leigufélag
Stofnfundur húsnæðissamvinnufélagsins Íbúðafélag Suðurnesja hsf., sem er óhagnaðardrifið leigufélag (non profit), þar sem félagsmenn geta leigt húsnæði á lægra verði en gengur og gerist á almennum markaði, verður á fimmtudaginn.
Íbúðir félagsins verða aðeins í útleigu og ekki verður hægt að selja þær út úr félaginu. Um er að ræða langtíma leiguréttaríbúðir sem veita meira húsnæðisöryggi en áður hefur þekkst hér á landi. Þannig íbúðir en eru með ca. 20% af húsnæðismarkaði á hinum Norðurlöndunum.
Fundurinn verður haldinn í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ og hefst klukkan 20.00.