Mánudagur 16. júní 2003 kl. 09:19
Stöðvaður á 141 km. hraða
Lögreglan í Hafnarfirði stöðvaði þrjá ökumenn á Reykjanesbraut í morgun, í grennd við Kúagerði. Sá sem hraðast ók var á 141 km. hraða og geta allir ökumennirnir búist við nokkuð háum sektum.