Stöðug sókn í húsnæði í Garði
Samkvæmt upplýsingum frá Páli S.Pálssyni, byggingafulltrúa, hefur orðið gífurleg aukning á íbúðarhúsnæði í Garði á síðustu árum. Kemur það fram á heimasíðu sveitarfélagsins sem og að mikil og stöðug eftirspurn sé eftir lóðum fyrir íbúðarhúsnæði í Garði. Á síðastliðnum tveimur árum hefur verið úthlutað lóðum fyrir 29 einbýlishús, 48 parhúsalóðir og lóðum fyrir 4 fjölbýlishús með 18-20 íbúðum.
Á þessu ári hefur verið úthlutað 22 einbýlishúsalóðum 28 parhúsalóðum og lóðum fyrir 4 fjölbýlishús með 18-20 íbúðum.
Á síðustu 3 árum hafa verið byggðar 16 parhúsaíbúðir við Lindartún og 36 parhúsaíbúðir við Kríuland og Lóuland. Hér er um að ræða íbúðir sem Bragi Guðmundsson verktaki hefur byggt og sjálfur selt íbúðir í Lindartúni en byggt fyrir Búmenn í Kríulandi og Lóulandi. Að auki hefur svo þó nokkuð verið um að einstaklingar hafi byggt og Liba verktakafyrirtæki hefur einnig staðið fyrir miklu átaki í byggingu íbúða.
Páll byggingafulltrúi segir að þetta þýði 107 íbúða aukningu en fyrir er 421 íbúð. Íbúum hefur fjölgað og nam fjölgunin 3,7 % á síðasta ári þegar íbúar voru 1322.
Frá árinu 2000 hefur verið úthlutað um 200 íbúðarhúsalóðum.
Af www.sv-gardur.is