Stóðu sig vel í spurningakeppni
Þeir Árni Benediktsson, Pétur Elíasson og Bjarni Freyr Rúnarsson stóðu sig frábærlega í spurningakeppninni Viskan sem haldin var á Rás 2 í þætti Samfés. 26 lið voru skráð til keppni frá 26 félagsmiðstöðvum. Kepptu liðin í svonefndri útsláttarkeppni og enduðu þeir félagar í þriðja til fjórða sæti.
Þeir kepptu fyrir félagsmiðstöðina Fjörheima í Reykjanesbæ eftir að hafa unnið undankeppnina sem haldin var í Fjörheimum. „Það var keppt í svona almennri visku svona svipað og Gettu betur,“ sagði Bjarni Freyr en spurningarnar stóðu saman af bjöllu og hraðaspurningum. „Spurningarnar urðu alltaf erfiðari og erfiðari eftir því sem leið á keppnina,“ sagði Pétur og bætti því við að þeim hafi gengið mjög vel að svara þeim. „Þetta var stressandi fyrst en síðan vandist þetta en við kepptum við fjögur lið en unnum þrjú,“ sagði Árni.
Liðið sem þeir töpuðu fyrir sigraði þessa keppni en það var lið frá félagsmiðstöðinni Nagyn frá Grafarvogi. Þeir félagar unnu félagsmiðstöðvarnar Nýung frá Egilsstöðum, Óðal frá Borgarnesi og Sigyn frá Grafarvogi. Spurðir um hvort þeir ætli að taka þátt í Gettu Betur eftir grunnskólann þá segjast þeir ekki hafa leitt hugann að því en Bjarni ætlar þó að taka þátt í undankeppninni í skólanum sem hann ætlar í.
VF-myndin: Atli Már Gylfason