Stjórnvöld skortir framtíðarsýn um gangaversiðnaðinn
Ísland er að tapa samkeppnisforskoti sínu í gagnaversiðnaði, samkvæmt nýrri skýrslu KPMG um íslenska gagnaversiðnaðinn sem unnin var fyrir Samtök gagnavera, DCI, í samvinnu við Landsvirkjun, Íslandsstofu og fleiri hagsmunaaðila innan gagnaversiðnaðarins.
Mikill áhugi virðist vera fyrir því að fjölga gagnaverum hér á Suðvesturhorninu og á undanförnum árum hefur gagnaversiðnaður vaxið talsvert á heimsvísu. Gögn eru helsta hrávara fjórðu iðnbyltingarinnar sem snýst að miklu leyti um söfnun gagna og úrvinnslu þeirra. Það verður því vaxandi þörf fyrir gagnaver og stjórnvöld í hinum ýmsu ríkjum hafa keppst um að laða til sín slíka starfsemi með markvissri stefnumótun og ýmsum aðgerðum henni tengdri.
Hér á landi skortir stjórnvöld framtíðarsýn um gagnaversiðnaðinn og ef ekkert verður að gert mun Ísland dragast aftur úr í samkeppni ríkja og missa af tækifærum á þessu sviði. Lagt er til að stjórnvöld móti skýra stefnu og að ráðist verði í margvíslegar aðgerðir til að efla umhverfi þessa mikilvæga iðnaðar, sambærilegt því sem best gerist í samkeppnislöndum Íslands á þessu sviði. Þannig verður byggður upp iðnaður tengdur fjórðu iðnbyltingunni sem skapar verðmæti, eykur fjölbreytni í útflutningi og styður þannig við uppbyggingu alþjóðageirans, fjórðu stoðar hagkerfisins, sem byggir á hugviti.
Í orkumálum þarf að efla samkeppni á raforkumarkaði og auka gagnsæi og til þess þurfa stjórnvöld meðal annars að styrkja rammaáætlun með það að markmiðið að auka fyrirsjáanleika á framboði á raforku. Marka skýra stefnu fyrir dreifingu og aðgengi raforku á þeim svæðum sem helst eru talin henta fyrir gangaver. Lækka kostnaðarþröskuld vegna dreifingar á raforku á þeim svæðum sem helst eru talin henta fyrir gagnaver og beita sér fyrir því að koma á laggirnar opnum rafsölumarkaði.
Þegar kemur að gagnatengingum, þá þarf að efla þær til landsins, fjölga þeim vakostum sem viðskiptavinir gagnavera hafa og lækka kostnað en ýmsar leiðir eru tilteknar í skýrslunni til þess að ná þessu markmiði, m.a. að greiða leið einkafjárfestingar í nýjum gagnastreng.
Erlenda markaðssetningu þarf að samhæfa með skilaboðum stjórnvalda og annara aðila til erlendra aðila um að Ísland sé vænlegur kostur fyrir kaupendur gagnaversþjónustu og fjárfesta í markaðssetningu líkt og samanburðarríki hafa gert af miklum krafti.