Stjörnuregn í Leifsstöð

Þau komu „low-profile“ eins og einhverjir myndu eflaust kalla það en það er alveg ljóst að þessir stórleikarar hefðu alveg haft efni á því að lenda með einkaflugvél á Keflavíkurflugvelli.
Þegar stjörnurnar birtust í Leifsstöð stökk ljósmyndari Víkurfrétta til og smellti á þeim myndum þegar þau gengu út úr flugstöðinni. Fólkið sem mætt var til að taka á móti vinum og ættingjum sínum vissu ekki hvað gengi á og spurðu eftir á hverjir þetta voru. Bandaríkjamenn sem mættir voru til að taka á móti vinum og ættingjum brá samt heldur betur í brún þegar þau sáu þessar stórstjörnur á litlum flugvelli á Íslandi.

Þetta er sannkallað stjörnusumar með tilkomu allmargra stórstjarna hingað til lands.
VF-myndin: Atli Már Gylfason