Stjórnsýsluhús steypt í Sandgerði

Byggingin verður upp á 3 hæðir, alls um 3.200 m2. Í húsinu verður bókasafn, bæjarskrifstofur, ýmis þjónustustarfsemi og miðjukjarni með þjónustueldhúsi og íbúðum.
Gengið verður frá lóð með malbikuðum bílastæðum, hellulögn og öðrum frágangi. Á lóðinni er gert ráð fyrir fjölskyldugarði og tjörn.
Fyrirhugað er að taka stjórnsýsluhúsið í notkun í febrúar á næsta ári.
Myndin: Iðnaðarmennirnir sem vinna við bygginguna voru hressir og stilltu sér fagmannlega upp til myndatöku. VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson.