Stjórnstöð almannavarna á Keflavíkurflugvelli mönnuð

Flugvélar sem lenda þegar þannig háttar til verða að bíða afgreiðslu þangað til vindstyrkur fer niður í þau mörk sem leyfa notkun landgöngubrúa. Ef flugvél er við landgöngubrú þegar vindur nær 25 m. sek. verður að færa brú frá og bíða þess að dragi úr vindi.??Hálka er ekki á flugvellinum og hvassviðri hefur jafnan ekki áhrif á flugtök og lendingar nema það standi á milli flugbrauta. Slíkar aðstæður sköpuðust um hríð nú á fimmta tímanum og varð ein flugvél að hverfa frá og hélt til Egilsstaða. Aðrar flugvélar sem á áætlun voru eru lentar.