Stjórnendur hverfi frá ráðningu Leifs Garðarssonar
Foreldrafélög Stapaskóla í Reykjanesbæ hafa sent áskorun á stjórnendur skólans og bæjarstjóra Reykjanesbæjar, þess efnis að hverfa frá ráðningu Leifs Garðarssonar í stöðu deildarstjóra unglingasviðs. „Þetta er gert vegna almennrar óánægju nemenda og foreldra við skólann varðandi þessa ráðningu,“ segir í yfirlýsingu sem Halldóra Bergsdóttir, formaður foreldrafélags grunnskólastigs Stapaskóla, sendir fyrir hönd stjórna foreldrafélaga grunnskólastigs og leikskólastigs Stapaskóla.
Leifur hætti störfum sem skólastjóri Ásandsskóla í Hafnarfirði fyrir rúmu ári síðan í kjölfar þess að hann var uppvís að því að senda skilaboð til leikmanns í kvennaflokki í körfubolta. Körfuknattleikssambandið tók ákvörðun um að Leifur myndi ekki dæma fleiri leiki en hann var reyndur körfuboltadómari í efstu deild. Formaður körfuknattleikssambandsins sagði við visir.is ástæðuna vera „óeðlileg“ skilaboð sem fóru „langt yfir strikið“.