Stjórnarandstöðuþingmenn fengu ekki fundarboð
Þingmenn stjórnarandstöðunnar í Suðurkjördæmi lýsa furðu sinni á því að lesa í fréttum að boðað hafi verið til fundar með þingmönnum Suðurkjördæmis, heilbrigðisráðherra og starfsmönnum ráðuneytisins um málefni Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, án þess að fá fundarboð. Það
hlýtur að vera árangursríkara að allir þingmenn kjördæmisins komi að málinu en ekki eingöngu stjórnarþingmenn. Staða HSS sem og annara kragasjúkrahúsa er viðkvæm og þeim mun mikilvægara að allir þingmenn kjördæmisins, jafnt stjórnarmeirihluta sem minnihluta komi að því að
tryggja þjónustu íbúa svæðisins, segir í tilkynningu frá þingmönnum Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Hreyfingarinnar í Suðurkjördæmi.