Fréttir

Stjórn United Silicon óskar eftir gjaldþrotaskiptum
Mánudagur 22. janúar 2018 kl. 16:17

Stjórn United Silicon óskar eftir gjaldþrotaskiptum

Stjórn United Silicon hf. hefur farið fram á gjaldþrotaskipti félagsins og beiðni hefur verið send til Héraðsdóms Reykjaness. Útséð þykir að nauðasamningar náist og því ekki forsendur fyrir beiðni um frekari framlengingu á greiðslustöðvun.
 
Ákvörðunin var tekin eftir að ljóst varð að Umhverfisstofnun gerði kröfu um rekstur hæfist ekki á ný í verksmiðjunni fyrr en eftir viðamiklar framkvæmdir sem gætu tekið vel á annað ár, segir í tilkynningu frá United Silicon.
 
Um skeið hefur verið ljóst að staða félagsins er þröng og afar erfið. Félagið fékk fyrst heimild til greiðslustöðvunar í ágúst 2017. Rekstur verksmiðju félagsins var skömmu síðar, eða þann 1. september, stöðvaður af Um­hverf­is­stofn­un. Heimild félagsins til greiðslu­stöðvun­ar var þann 4. september framlengd til 4. des­em­ber og þann dag til dagsins í dag.
 
Arion banki hefur lagt félaginu til fjármagn á greiðslustöðvunartímabilinu og kostað rannsóknir og greiningar á stöðunni. Verkefni stjórnar á greiðslustöðvunartímabilinu var að reyna að ná nauðasamningum og fá nýja fjárfesta að félaginu. Forsenda þess var að fá betri upplýsingar um stöðu félagsins. 

„Þær úttektir sem unnar voru leiddu meðal annars í ljós mikla óreiðu og upp kom rökstuddur grunur um fjárdrátt stofnanda félagsins. Hann hefur verið kærður til embættis héraðssaksóknara,“ segir m.a. í tilkynningu félagsins. 
 
Einnig voru framkvæmdar ítarlega úttektir á búnaði verksmiðjunnar. Í skýrslu út­tekt­araðila kom fram að grunn­hönn­un ofns­ins sjálfs væri góð en aug­ljóst sé að ódýr og óvandaður jaðarbúnaður hafi orsakað tíðar bilanir og skapað erfiðleika við fram­leiðsluna. Mat sér­fræðing­anna sýn­di að um 25 millj­ón­ir evra þyrfti til að verk­smiðjan teldist full­kláruð. 
 
Þegar félög fara í gjaldþrot þá tekur við ferli sem er í höndum skiptastjóra sem skipaður er af héraðsdómara.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024