Stjórn Þróunarfélagsins fagnar úttekt

Stjórn félagsins segir tilganginn með stofnun þess hafi meðal annars verið að koma fasteignum í eigu ríkisins á Keflavíkurflugvelli sem fyrst í arðbær borgaraleg not með það að markmiði að jákvæð samfélagsleg áhrif verði sem mest og neikvæðum áhrifum á nærsamfélagið verði haldið í lágmarki.
Þróunarfélagið hefur að þeirra sögn, allt frá stofnun í október 2006, unnið faglega samkvæmt þjónustusamningi þess við ríkið. Það hafi frá upphafi kallað eftir áhugasömum aðilum með hugmyndir um nýtingu eigna á svæðinu, meðal annars með áberandi auglýsingum með vísun í upplýsandi vef félagsins, þar sem allar óseldar eignir ríkisins á svæðinu eru kynntar og söluskilmálar tíundaðir.