Stjórar af Suðurnesjum stýra Fjallabyggð
Bæjarráð Grindavíkurbæjar hefur samþykkt að auglýsa stöðu sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs bæjarins. Kristinn Jakob Reimarsson hefur sagt upp starfi sínu sem sviðsstjóri og hefur verið ráðinn í starf menningar- og markaðsfulltrúa Fjallabyggðar, þar sem Sigurður Valur Ásbjarnarson, fv. bæjarstjóri í Sandgerði, er bæjarstjóri.
Bæjarráð Grindavíkur þakkar Kristni fyrir vel unnin störf fyrir samfélagið í Grindavík og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi, segir í fundargerð.