Stjarnan harmar óverðskulduð orð í garð Hauks Inga
Knattspyrnudeild Stjörnunnar hefur sent frá sér afsökunarbeiðni til allra Keflvíkinga vegna framkomu stuðningsmanna Stjörnunnar á leik Keflavíkur og Stjörnunnar í gærkvöldi. Þar létu stuðningsmenn Stjörnunnar falla skelfileg orð í garð Hauks Inga Guðnasonar, leikmanns Keflavíkur, og fjölskyldu hans, eins og greint var frá fyrr í dag hér á vf.is. Afsökunarbeiðni Stjörnunnar fer hér á eftir en þar segir að knattspyrnudeild Stjörnunnar muni taka mjög fast á þessum málum og tryggja að þetta komi ekki fyrir aftur.
Afsökunarbeiðni frá knattspyrnudeild Stjörnunnar til allra Keflvíkinga
Knattspyrnudeild Stjörnunnar harmar mjög framkomu nokkurra stuðningsmanna Stjörnunnar þar sem óverðskulduð orð voru látin falla í garð Keflvíkinga af þröngum hópi stuðningsmanna Stjörnunnar í leik liðanna í Keflavík í gær.
Ungmennafélag Stjörnunnar er þekkt fyrir heiðarleika og viljum við halda því orðspori.
Við munum taka mjög fast á þessum málum til þess að tryggja það að þetta komi ekki fyrir aftur.
Fyrir hönd knattspyrnudeildar Stjörnunnar vil ég biðja Keflvíkinga innilega afsökunar á ofangreindri framkomu.
Megi ungmennafélagsandinn svífa yfir vötnum.
Gangi ykkur vel.
Virðingafyllst,
Einar Einarsson
rekstrarstjóri knattspyrnudeildar Stjörnunnar.