Stéttarfélög á Suðurnesjum styðja aðgerðir gegn Primera
Stjórnir tveggja stéttarfélaga sem eru með starfsmenn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hafa samþykkt stuðningsyfirlýsingar við Flugfreyjufélag Íslands í vinnudeilu þess við Primera Air Nordic.
Félögin heita því að veita Flugfreyjufélaginu alla þá aðstoð sem þeim er heimilt skv. lögum nr. 80/1938 dragist deilan á langinn þar sem í húfi sé kjarasamningsréttur íslenskra stéttarfélaga gegn undirboðum erlendra þjónustufyrirtækja hér á landi. Stéttarfélögin sem hér um ræðir eru Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis og Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis.
Flugfreyjufélag Íslands samþykkti þann 9. maí sl. vinnustöðvun flugfreyja um borð í vélum Primera Air Nordic. Verkfall hefst þann 15. september 2017 hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma. Laun flugliða Primera Air, sem flestir eru frá Lettlandi, eru langt undir íslenskum lágmarkslaunum auk þess sem þeir njóta ekki ýmissa þeirra réttinda sem lög- og kjarasamningsbundin eru hér á landi. Primera Air Nordic starfar á Íslandi og flugliðar þess eru með heimahöfn hér á landi.