Bygg
Bygg

Fréttir

Steig á bensín í stað bremsu
Mynd úr safni.
Föstudagur 14. september 2012 kl. 14:34

Steig á bensín í stað bremsu

Talsvert var um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni.

Talsvert var um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Ökumaður sem var að aka inn á bifreiðastæði steig á bensíngjöf í stað þess að hemla, með þeim afleiðingum að bifreiðin fór yfir gangstétt og utan í aðra bifreið á stæðinu. Þá skullu tveir bílar saman á Reykjanesbraut eftir að öðrum þeirra hafði verið ekið inn á veginn í veg fyrir hinn.

Fjarlægja þurfti þá af staðnum með kranabíl. Þriðja óhappið varð á gatnamótum á Vatnsnesvegi, þegar tveir bílar rákust saman. Loks varð árekstur í Keflavík og fóru báðir ökumennirnir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, þar sem þeir kenndu eymsla. Ökutækin voru fjarlægð með tækjabifreiðum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn