Stefnumótun í ferðaþjónustu í Vogum
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga tók í vikunni fyrir erindi Þorvaldar Arnar Árnasonar, íbúa í Vogum og formanns Frístunda- og menningarnefndar. Í erindinu lagði Þorvaldur fram hugmyndir og drög að stefnu um eflingu ferðaþjónustu í Sveitarfélaginu Vogum.
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum, fjallar um málið í vikulegu fréttabréfi sínum í dag. Þar segir:
„Í erindi Þorvaldar kemur fram að hugmyndirnar hafi lengi verið í mótum og verið ræddar formlega og óformlega í ýmsum útgáfum við ýmis tækifæri undanfarin 6 ár. Hvatti Þorvaldur sveitarfélagið til að taka forystu í málinu og nýta þau gríðarlegu tækifæri sem blasa við.
Í drögunum kemur fram að markmiðið sé að nýta tækifærið í ferðaþjónustu til að efla byggðina, skapa skemmtileg og fjölbreytt störf, bæta ímynd byggðarinnar og fjölga íbúum, veita gestum og íbúum góða þjónustu ásamt því að auka líf og fjör og samkennd í sveitarfélaginu.
Bæjarráð tók vel í erindi Þorvaldar, ákvað að mynda verkefnahóp og fól bæjarstjóra að undirbúa málið með því að leggja fram drög að erindisbréfi hópsins á næsta fundi bæjarráðs.
Næstu skref eru því að hefjast handa við undirbúning málsins, skipa vinnuhópinn sem tekur síðan til starfa við að móta og útfæra áætlunina.“