Heilsugæslan Höfða bólus. 2026
Heilsugæslan Höfða bólus. 2026

Fréttir

Stefnumót við Reykjanesvirkjun í tilefni afmælis
Föstudagur 27. september 2024 kl. 06:03

Stefnumót við Reykjanesvirkjun í tilefni afmælis

Í tilefni af því að í ár verða fimmtíu ár liðin frá stofnun Hitaveitu Suðurnesja, forvera HS Orku, býður HS Orka íbúum Suðurnesja og gestum þeirra á stefnumót við Reykjanesvirkjun þriðjudaginn 1. október næstkomandi kl. 17:30.

Farið verður í stutta göngu um athafnasvæði HS Orku við Reykjanesvirkjun undir leiðsögn starfsfólks. Að göngunni lokinni verður boðið upp á léttan fróðleik og afmælishressingu inni á annarri hæð virkjunarinnar.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Gestir á öllum aldri eru hjartanlega velkomnir. Þar sem farið er að hausta bendum við gestum á að koma í hlýjum fatnaði og góðum skóm.

Hægt er að skrá sig á viðburðinn Stefnumót við Reykjanesvirkjun á vef HS Orku eða með því að mynda QR-kóðann með snjallsíma.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100