Bygg
Bygg

Fréttir

Stefnir í fjörlega kosningabaráttu í Grindavík
Fimmtudagur 8. apríl 2010 kl. 08:37

Stefnir í fjörlega kosningabaráttu í Grindavík


Það stefnir í fjörlega kosningabaráttu í Grindavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Útlit er fyrir að að sex framboðslistar muni keppast um hylli kjósenda í bæjarfélaginu.
Framsókn, Sjálfstæðisflokkur og Listi Grindvíkinga hafa þegar lagt fram sína lista og Samfylkingin leggur sinn fram á mánudaginn. Vinstri grænir ætla að bjóða fram og Frálslyndir og óháðir eru að fara yfir stöðuna með hugsanlegt framboð í huga. Þeir hafa boðað til fundar í kvöld þar sem afstaða verður tekin til þess.

Garðar Páll Vignisson, bæjarfulltrúi Vinstri grænna, staðfestir við tíðindamann vefsíðu Grindavíkurbæjar að flokkurinn ætli að bjóða fram fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor.

Sem kunnungt hafa verið miklar sviptingar í bæjarpólitíkinni í Grindavík á kjörtímabilinu. Ljóst er að miklar breytingar verða skipan bæjarfulltrúa þar sem flestir núverandi fulltrúa ákváðu að gefa ekki kost á sér og nýtt fólk hefur fengið mikinn meðbyr í þeim prófkjörum sem farið hafa fram.

----

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Ljósmynd/Oddgeir Karlsson.