Sunnudagur 20. janúar 2008 kl. 16:39
Stefán Thordersen flugvallastjóri tímabundið

Stefán Thordersen, yfirmaður öryggissviðs Flugmálastjórar á Keflavíkurflugvelli, hefur tekið við starfi flugvallarstjóra tímabundið, en Björn Ingi Knútsson hætti störfum sem slíkur og sneri sér að öðrum vettvangi. Viðskiptablaðið segir frá þessu í ítarlegri grein um fluvöllinn í dag.
Ekki hefur enn verið gengið frá ráðningu nýs flugvallarstjóra en frumvarp sem felur í sér sameiningu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli verður sennilega lagt fyrir Alþingi á vordögum.