Stefán Karl með fyrirlestur í öllum grunnskólum landsins
Stefán Karl Stefánsson leikari og Nýherji bjóða upp á fyrirlestur í öllum grunnskólum landsins í dag, þriðjudaginn 7. nóvember. Þetta er fremur óvenjulegur fyrirlestur fyrir þær sakir að hér er um að ræða útsendingu frá Los Angeles þar sem Stefán Karl er búsettur um þessar mundir, að því er segir í tilkynningu.
Fyrst býður Stefán uppá fyrirlestur fyrir nemendur skólanna um morguninn og síðan fyrir foreldra um kvöldið.
Fyrirlesturinn fyrir foreldra í Reykjanesbæ verður haldinn í Holtaskóla og hefst hann kl. 20:00.
Fyrirlestrarnir eru efnislega tengdir svo að mikilvægt er að allir foreldrar mæti. Ef að líkum lætur verður hér um að ræða stærsta foreldrafund sem haldinn hefur verið svo vitað sé og því ætti það að virka hvetjandi fyrir alla foreldra grunnskólabarna að taka þátt í þessum óvenjulega viðburði.
Stefán Karl fór á sínum tíma um landið og hélt fyrirlestra fyrir börn og foreldra þar sem hann ræddi um einelti og ofbeldi út frá örlítið öðru sjónarhorni en við erum vön. Stefán Karl stofnaði svo í framhaldinu samtökin Regnbogabörn.
Miðaverð inn á foreldrafundinn er einungis 1.000 krónur og er miðaverði stillt í hóf svo að sem flestir sjái sér fært að mæta. Hluti ágóða rennur til Regnbogabarna. Fyrirlestur fyrir nemendur um morguninn er hinsvegar börnum og skólum að kostnaðarlausu.
Fyrirlestur fyrir börnin er um 35 mín langur en foreldrafundurinn er um 2 klukkustundir með 20 mín hléi.
Ástæða er til að ítreka að foreldrafundurinn er aðeins ætlaður foreldrum, kennurum og forráðamönnum barna og að börnum er ekki heimill aðgangur.
Segja má að hér sé um einhverskonar „Stand-Up” að ræða svo að enginn ætti að óttast orðið „Foreldrafundur” um of segir í tilkynningu.