HSS
HSS

Fréttir

Fimmtudagur 12. júlí 2001 kl. 16:25

Starraungi gerir sig heimakominn á hóteli

Starraungi hefur gert sig heimakominn í móttöku Flug Hótels í Keflavík síðustu daga. Í dag sýndi unginn mikinn kjark og settist að í tré inni á hótelinu. Fuglinum hefur tvívegis verið vísað á dyr áður en var borinn út í dag af hótelstjóranum, Bergþóru Sigurjónsdóttur.
Í samtali við ljósmyndara fyrr í dag sagðist hún ekki vita hverrar tegundar fuglinn væri en grunaði að þetta væri starri. „Ég hef varla þorað að koma við hann. Fuglinn er hins vegar mjög gæfur,“ sagði Bergþóra í samtali við blaðið. Stúlkurnar í móttökunni sögðu hins vegar að það væri mjög suðrænt að hafa fugla í trjánum en starrinn væri kannski ekki efstur á óskalistanum.
FlugHótel er fullbókað þessa dagana en gisting í trjánum telst ekki þar á meðal.
Bílakjarninn
Bílakjarninn