Starfsmenn VL ljúka störfum á föstudaginn: 105 þeirra ekki komnir með annað starf
Af þeim starfsmönnum VL sem hætta störfum á föstudaginn eru 105 Suðurnesjamnenn sem ekki eru komnir í önnur störf af því er best er vitað. Um er að ræða 61 karl og 44 konur. Af þessum einstaklingum eru 20 á aldrinum 60 – 66 ára en það er sá hópur sem mestar áhyggjur hafa verið bundnar við. Stærsti hópurinn er á aldrinum 40 – 59 ára.
Að sögn Helgu J. Oddsdóttur, forstöðumanns Ráðgjafastofu starfsmanna varnarsvæðis, hefur ekki náðst í 46 einstaklinga úr starfsmannahópnum og því er ekki almennilega vitað um stöðu þeirra. Hugsanlegt sé að einhverjir þeirra séu komnir með önnur störf. Helga segir að helst sé það skrifstofufólkið sem eigi í vandræðum með að finna sambærileg störf hér á svæðinu, þar sem framboðið sé ekki mikið.
Af þeim tæplega 600 starfsmönnum Varnarliðsins sem misstu vinnuna við lokun herstöðvarinnar voru 72% fólk af Suðurnesjum. Meirihluti þeirra er því kominn í önnur störf.
„Þetta hefur því gengið alveg ágætlega en það kemur mér á óvart hversu margir þeirra sem enn eru ekki komnir með önnur störf, eru rólegir yfir hlutunum,” sagði Helga.
Mynd: Rekkarnir við stimpilklukkurnar á Vellinum eru tómlegir. Á föstudaginn er síðasti vinnudagur þeirra sem enn eru við störf hjá VL.