Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Starfsleyfi gefið út fyrir kísilverksmiðju í Helguvík
Þriðjudagur 15. september 2009 kl. 15:25

Starfsleyfi gefið út fyrir kísilverksmiðju í Helguvík


Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi fyrir Íslenska kísilfélagið ehf vegna fyrirhugaðrar verksmiðju í Helguvík.  Nýtt starfsleyfi heimilar rekstraraðila að framleiða allt að 50.000 tonnum á ári af hrákísli og allt að 20.000 tonnum af kísilryki auk reksturs fylgibúnaðar, verkstæða og annarrar þjónustu fyrir eigin starfsemi.


Umhverfisstofnun auglýsti tillögu að starfsleyfinu á tímabilinu 29. maí til 23. júlí 2009 og bárust tvær athugasemdir. Þær breytingar sem gerðar voru á tillögunni fram að útgáfu hennar nú sneru aðallega að samræmingu á orðalagi við önnur sambærileg leyfi en ekki voru gerðar breytingar á kröfum og fyrirkomulagi eftirlits og vöktunar, segir á vef Umhverfisstofnunar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Starfsleyfið öðlast þegar gildi og gildir til 30. september 2021.


Sjá vef Umhverfisstofnunar hér.
---


Ljósmynd/Oddgeir Karlsson - Horft yfir Helvíkursvæðið. Gangi allt eftir rís þar bæði álver og kísilverksmiðja.