Starfsfólk Paddy´s selur föt
„Okkur fannst vanta smá tilbreytingu og viðburði í bæinn og ákváðum að skella í fatamarkað þar sem staðir í Reykjavík hafa verið duglegir að gera svipað,“ segir Azra Crnac, einn af starfsmönnum Paddy´s, en starfsfólkið og vinir þeirra verða með fatamarkað á staðnum næstkomandi laugardag sem opinn er öllum. „Þetta er ákveðin stemning og það er betra og hagstæðara fyrir alla ef verslað er á svona máta,“ segir Azra.
Fatamarkaðurinn verður frá klukkan 14 til 20 um kvöldið á neðri hæð Paddy´s sem staðsettur er að Hafnargötu 38.