Miðvikudagur 15. maí 2002 kl. 11:34
Starfsfólk Leifsstöðvar sýnir viðbúnaðinum skilning

Öryggisgæsla á Keflavíkurflugvelli hefur verið í hámarki undanfarna daga í tilefni af NATO fundinum í Reykjavík. í dag hefur þó hefur aðeins verið slakað á viðbúnaðinum en við brottfarir sendinefnda og sendifulltrúanna verður viðbúnaðurinn hertur aftur að sögn Stefáns Thordersens, förstöðumanns öryggissvið Flugmálastjórnar. Stefán sagði að ýmsar sértækar öryggisráðstafanir verði viðhafðar við þessar brottfarir í samræmi við handbók Flugmálastjórnar Keflavíkurflugveli um skipulag flugverndarmála á flugþjónustusvæðinu.
Þá hafa starfsmenn hinna ýmsu fyrirtækja á svæðinu sýnt þessum hertu öryggisráðstöfunum mikinn skilning enda flestir starfsmannanna orðnir vel vanir hinum ýmsu öryggisráðstöfunum sem viðhafðar eru dagsdaglega sagði Stefán Thodersen í samtali við Víkurfréttir í morgun. NATO fundinum lýkur í dag og má þá búast við að ráðherrar og fylgilið fari að týnast úr landi jafnvel seinni partinn í kvöld.