Starfsfólk HSS boðar til fjöldamótmæla á Austurvelli

Starfsfólk á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja boðar til fjöldamótmæla á Austurvelli fimmtudaginn 21. október kl. 17:00. Í tilkynningum sem settar hafa verið upp á opinberum stöðum á Suðurnessjum segir:
„Allir Suðurnesjamenn! Fjöldamótmæli á Austurvelli fimmtudaginn 21.okt kl.17. Jæja, nú þurfum við að láta í okkur heyra og berjast fyrir okkar málstað. Sýnum samstöðu og mætum öll á Austurvöll. Mætum með kröfuspjöld, en höfum þau málefnaleg“.
Í samtali við Víkurfréttir sagði Katrín Guðmundsdóttir, sem prýðir forsíðu Víkurfrétta í dag á meðfylgjandi mynd, að hún vonaðist til að Suðurnesjamenn sýndu starfsfólki Heilbriðisstofnunar Suðurnesja samstöðu með því að fjölmenna á mótmælin eftir rétta viku.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				