Bygg
Bygg

Fréttir

Starfsfólk Flugstöðvarinnar í golfkennslu
Sunnudagur 17. júlí 2005 kl. 13:04

Starfsfólk Flugstöðvarinnar í golfkennslu

Flugstöð Leifs Eiríkssonar (FLE) og Fríhöfnin gerðu styrktar- og samstarfssamning við Golfklúbb Suðurnesja (GS) í vor.  Hluti af þeim samningi var skipulagning golfkennslu fyrir starfsfólk FLE, Fríhafnarinnar og Íslensks markaðar. 

Kennslan sem fór fram í júní og var í kjölfar hennar haldið golfmót á æfingavellinum á Leiru.  Þar sem starfsfólk í verslunum Fríhafnarinnar og Íslensks markaðar vinna á vöktum voru haldin tvö mót, 27. og 30. júní. 

Mjög góð þátttaka var meðal starfsfólks í kennslunni, en rétt tæplega 80 manns nýttu sér hana. 

Þeir sem unnu til verðlauna í mótinu 27. júní voru:
    1. sæti Jens Kristbjörnsson
    2. sæti Sturla Eðvarðsson
    3. sæti Guðný María Jóhannsdóttir

Alls tóku 19 starfsmenn þátt í mótinu.

Þeir sem unnu til verðlauna í mótinu 30. júní voru:
    1. sæti Guðjón Guðjónsson
    2. sæti Íris Dögg Steinsdóttir
    3. sæti Sigurður B. Bjarnason

Alls tóku 16 starfsmenn þátt í mótinu.

Mynd frá heimasíðu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar

Bílakjarninn
Bílakjarninn