Bygg
Bygg

Fréttir

Miðvikudagur 9. febrúar 2000 kl. 15:57

Starfsemin endurskoðuð hjá Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanebæjar

Starfsfólk Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar hefur gert víðtæka starfsáætlun fyrir stofnanir og deildir sem heyra undir hana. Þetta er í fyrsta sinn sem slík áætlun er gerð og stefnt er að því að hún verði endurskoðuð ár hvert. Tilgangurinn með áætluninni er að endurskoða starfsemi stofnunarinnar á markvissan hátt. Meðal málaflokka sem verða skoðaðir eru fjármál, þjónusta, jafnréttismál, daggæslumál, aðstoð við áfengissjúka og vímuvarnir, málefni fatlaðra og fleira. Kristmundur Ásmundsson (J) lýsti yfir ánægju sinni með starfsáætlunina, á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í síðustu viku. Hann sagðist jafnframt óska eftir að fleiri stofnanir gerðu slíkt hið sama. Skúli Þ. Skúlason (B) oddviti bæjarstjórnar, sagði að áætlunin væri mjög vel unnin í alla staði og að það væri á döfinni að fleiri stofnanir gerðu starfsáætlanir.
Bílakjarninn
Bílakjarninn