Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Starfsemi Varnarmálastofnunar til skoðunar
Föstudagur 6. febrúar 2009 kl. 09:47

Starfsemi Varnarmálastofnunar til skoðunar



Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir að starfsemi Varnarmálastofnunar sé til skoðunar í ráðuneytinu. Ekki sé þó tímabært að að gefa yfirlýsingar um stefnubreytingu stjórnvalda varðandi stofnunina. Frá þessu er greint á Visir.is í gær.

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurðist fyrir um framtíð stofnunarinnar og fyrirhugað loftrýmiseftirlit Dana á næstunni í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun.

„Við lestur á mjög rýrri verkaefnaskrá er ekki minnst á þessi mál og hvert á að stefna." Fram kom í máli Jóns að hann telur að reka eigi Varnarmálastofnun með öðrum hætti og að loftrýmiseftirlitið sé óþarfi.

Össur sagði að í utanríkisráðneytinu starfi nefnd sem kanni hvort hægt sé að haga megi málum með öðrum hætti en nú sé gert og um leiða spara fé.

Ekki stendur til að gera breytingar á fyrirhuguðu loftrýmiseftirliti Dana, að sögn Össurar.

Visir.is

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024