Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi
Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi

Fréttir

Starf skólameistara FS auglýst laust til umsóknar
Miðvikudagur 6. maí 2026 kl. 10:08

Starf skólameistara FS auglýst laust til umsóknar

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur auglýst embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja (FS) laust til umsóknar. Eins og kunnugt er sagði Kristján Ásmundsson, skólameistari, embætti sínu lausu á dögunum til að mótmæla aðgerðaleysi stjórnvalda í húsnæðismálum skólans.

Fjölbrautaskóli Suðurnesja, sem var stofnaður árið 1976 og því 50 ára á árinu, er einn af burðarásunum í menntakerfi Suðurnesja. Skólinn þjónar um 1.300 nemendum í dagskóla, síðdegisnámi og í gegnum samstarf við grunnskóla svæðisins. Í auglýsingu ráðuneytisins er lögð áhersla á að skólinn sé áfangaskóli þar sem bóknám og verknám standa jafnfætis.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Sá leiðtogi sem leitað er að þarf að hafa skýra sýn á þróun framhaldsskólastigsins, sérstaklega með tilliti til örrar tækniþróunar og breyttra hæfnikrafna í samfélaginu. Fram kemur að á næstu misserum verði lögð aukin áhersla á styrkingu stjórnsýslu, umgjörð skólans og gagnadrifna ákvarðanatöku.

Skólameistari er skipaður af mennta- og barnamálaráðherra til fimm ára í senn, að fenginni umsögn skólanefndar. Gert er ráð fyrir að nýr skólameistari taki við embættinu þann 1. ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til og með 18. maí næstkomandi.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100