Miðvikudagur 26. febrúar 2003 kl. 16:32
Stapinn loksins merktur

Veitinga- og skemmtistaðurinn Stapinn fékk smá andlitslyftingu í dag í góða veðrinu. Búið er að koma upp stórri merkingu á framhlið staðarins og þurfti körfubíl til að koma merkinu upp enda er hæðin á Stapanum þó nokkur og erfitt að koma slíku skilti upp í þessa hæð.Stapinn hefur aldrei verið merktur enda hefur það væntanlega ekki þótt nauðsynlegt þar sem allir landsmenn ættu nú að kannast við einn frægasta skemmtistað landsins. Það er þó spurning hvort Halli í Stapanum hafi ákveðið að merkja staðinn eftir að hann horfði á keppanda í þættinum „Villtu vinna milljón?“ flaska á þeirri einföldu spurningu; Í hvaða sveitarfélagi er Stapinn?