HSS
HSS

Fréttir

Standa saman í útboði vegna byggingar öryggisfangelsis
Þriðjudagur 1. mars 2011 kl. 10:20

Standa saman í útboði vegna byggingar öryggisfangelsis

Bæjarráð Garðs samþykkir að sveitarfélögin á Suðurnesjum standi saman að þátttöku í útboði ríkisins vegna byggingar öryggisfangelsis og að Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, muni leiða þá vinnu í samvinnu við sveitarfélögin sem hluta af verkefninu Ásbrú Norður. Ásbrú Norður er m.a. það svæði þar sem Rockville stóð áður á Miðnesheiði.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Einnig samþykkir bæjarráð Garðs að skipaður verði undirbúningshópur sem í sitji bæjarstjórar sveitarfélaganna, ásamt framkvæmda- og verkefnastjóra Kadeco.