Stálu viskí og sjálfskiptingarvökva
Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning síðdegis síðastliðinn föstudag þess efnis að fjórir menn hefðu sést á hlaupum frá verslunarmiðstöðinni í Njarðvík. Voru þeir grunaðir um að hafa stolið áfengi úr vínbúðinni þar, svo og varningi úr Bílanausti.
Lögreglumenn brugðust skjótt við og hlupu mennina uppi. Þeir voru handteknir og færðir á lögreglustöð. Einn þeirra viðurkenndi þar að hafa stolið Jim Beam viskíflösku og tveimur brúsum af sjálfskiptingarvökva. Hann gat vísað lögreglu á staðinn þar sem hann lét flöskuna frá sér á hlaupunum og var henni skilað í vínbúðina.