Stálu bíl og keyrðu á
Fjórir gistu fangaklefa lögreglunnar í Keflavík í nótt. Þar af voru tvær stúlkur, 16 og 17 ára gamlar, handteknar í Grindavík grunaðar um að hafa tekið bifreið ófrjálsri hendi og ekið henni á steinhleðsluvegg við skemmtistaðinn Festi. Stúlkurnar sluppu án teljandi meiðsla en bifreiðin skemmdist talsvert sem og veggurinn. Þá fengu tveir menn að gista fangaklefa vegna ölvunar.
VF-myndir/ Þorkell Erlingsson