Stálu bíl af bílasölu
Þrír menn stálu bíl af bílasölu í Reykjanesbæ á föstudagskvöldið. Fundust þeir á bílnum á höfuðborgarsvæðinu þar sem lögregla stöðvaði mennina og handtók þá. Höfðu þeir skipt um númeraplötur á bílnum. Voru þeir færðir í fangageymslur í Keflavík þar sem þeir fengu gistingu um nóttina og biðu þeirra yfirheyrslur í gær.
Tveir gistu fangageymslur lögreglu í nótt, annar vegna ölvunar og óláta á skemmtistað og hinn grunaður um líkamsárás og er það mál í rannsókn.