Stálu bíl og keyrðu út af
Lögreglan í Keflavík handtó fjóra karlmenn eftir að bifreið þeirra hafnaði utan vegar við Vogaveg á Reykjanesbraut um sexleytið í morgun. Mennirnir, sem stálu bifreiðinni slösuðust ekki en náðust á hlaupum skammt frá. Ökumaður bifreiðarinnar er grunaður um ölvun við akstur. Bifreiðin skemmdist nokkuð.