Kvenfélag Keflavíkur
Kvenfélag Keflavíkur

Fréttir

Stálu bensíni af golfbílum
Fimmtudagur 1. nóvember 2012 kl. 13:41

Stálu bensíni af golfbílum

Lögreglunni að Suðurnesjum barst tilkynning um bensínþjófnað úr þremur skúrum hjá Golfklúbbi Suðurnesja í vikunni. Þaðan var stolið bensíni sem geymt var í brúsum en einnig hafði bensíni verið dælt af golfbílum, sem voru í einum skúranna.

Þá var eldsneyti stolið úr tönkum tveggja bifreiða í Njarðvík. Taldi sá er tilkynnti þjófnaðinn að sá eða þeir, sem þarna voru að verki, hefðu náð 70 til 75 lítrum af hvorri bifreið, bensíni af annarri en olíu af hinni.

Hann kvaðst hafa orðið fyrir slíku tjóni áður, þegar hann hefði fyllt tank bifreiðar sinna að kvöldi en komið að henni með hálftóman tank morguninn eftir. Málin eru í rannsókn.