Stálpípuverksmiðja: Vonast til að byggingaframkvæmdir hefjist í október
Bandaríska stálpípufyrirtækið International Pipe and tube hyggst hefja framkvæmdir við byggingu tæplega 9 þúsund fermetra stálgrindarhúss á nýrri lóð í Helguvík í lok október. Í áætlunum fyrirtækisins er gert ráð fyrir að verksmiðjan taki til starfa á miðju næsta ári.
Í verksmiðjunni, sem staðsett verður ofan við Helguvíkurhöfnina, verða framleidd mun stærri rör en framleidd verða í verksmiðjunni sem staðsett verður við höfnina. Er fyrirtækið að nýta sér ákvæði í lóðarsamningi þar sem kveðið er á um möguleika fyrirtækisins að stækka lóð þess á svæðinu. Fyrirtækið hefur sent útboðsgögn til verktaka á Íslandi og er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í lok október. IPT hefur þegar fest kaup á tækjum og búnaði frá Kanada sem sett verða upp í verksmiðjunni.
Á sama tíma og fyrirtækið hyggst reisa verksmiðju ofan Helguvíkur hefur fjármögnun verksmiðjunnar sem verður staðsett við höfnina ekki verið kláruð. IPT hefur frest fram til loka nóvember að ganga frá fjármögnun en samkvæmt heimildum Víkurfrétta er hún á lokastigi.
Pétur Jóhannsson hafnarstjóri segir að IPT hafi frest til 20. nóvember að hefjast handa við byggingu hússins á efri lóðinni. „Ef framkvæmdir verða ekki hafnar fyrir þann tíma á lóðinni þá missir fyrirtækið hana.“
Fjármögnun IPT vegna stálpípuverksmiðju í Helguvík hefur tekið mun lengri tíma en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir. Rúm tvö ár eru síðan skrifað var undir samninga um verkefnið á veitingahúsinu Ránni þar sem m.a. Valgerður Sverrisdóttur iðnaðarráðherra var viðstödd. Samkvæmt upphaflegum áætlunum var gert ráð fyrir að verksmiðja IPT yrði gangsett í byrjun árs 2005 og er þá átt við verksmiðjuna niður við höfnina. Ljóst er að svo verður ekki og er nú gert ráð fyrir að sú verksmiðja taki til starfa á árinu 2006.
Miklar væntingar eru gerðar til stálpípuverksmiðjunnar í Helguvík enda er gert ráð fyrir að á milli 200 og 240 manns starfi við verksmiðjuna. Vegna þeirra tafa sem orðið hafa á fjármögnun verksmiðjunnar gerast efasemdaraddir á Suðurnesjum æ háværari. Í rúm tvö ár hafa verið fluttar fréttir af fjármögnun verkefnisins, lóðaframkvæmdum í Helguvík og öðrum þáttum er viðkoma stálpípuverksmiðjunni, enda mikilvægi málsins augljóst fyrir svæðið.
Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar hefur sagt að ekki verði fagnað fyrr en framkvæmdir fyrirtækisins í Helguvík hefjast.
Myndin: Loftmynd af Helguvíkursvæðinu. International Pipe and Tube vonast til að byggingaframkvæmdir hefjist á lóð ofan Helguvíkurhafnar á 9 þúsund fermetra verksmiðjuhúsnæði. Ljósmynd/Oddgeir Karlsson.