Stálpípuverksmiðja: fjármögnun á góðri leið
Gert er ráð fyrir að Stálpípuverksmiðja í Helguvík taki til starfa á fyrri hluta ársins 2006. Heildarkostnaður við bygginguna er rúmir 6 milljarðar króna. Fjármögnun og hönnunarvinna verksmiðjunnar er á lokastigi að sögn Barry Bernsten forstjóra International Pipe and Tube.
Barry segir að á síðari hluta ársins 2003 hafi forsvarsmenn IPT hafið viðræður við bankastofnanir í Bandaríkjunum og Evrópu. „Þeir bankar sem við áttum í viðræðum við óskuðu eftir þátttöku íslenskra banka í fjármögnuninni. Við leituðum til íslenskra bankastofnana í framhaldinu og þeir sýndu málinu áhuga. Við eigum núna í viðræðum við bankastofnanir í New York og London um lokafjármögnun verkefnisins og við vonumst til að innan tveggja mánaða liggi fjármögnun fyrir,“ sagði Barry Bernsten í samtali við Víkurfréttir.
Tölvuteikning af hluta af Helguvíkursvæðinu.